Fara beint í efni
Novamedia

Verkefni

Látum verkin tala.

Sterkasta sönnunin fyrir því hvað við getum er það sem við rekum sjálf: hugbúnaðarvörur í daglegri notkun hjá íslenskum fyrirtækjum, sérhæfð vörumerki — og viðskiptavinir sem hafa fylgt okkur árum saman.

01 — Eigin hugbúnaður

Vörur sem við smíðuðum og rekum í framleiðslu

Hver vara byrjaði sem raunverulegt vandamál hjá íslenskum fyrirtækjum. Við hönnuðum lausnina, forrituðum hana og rekum hana á hverjum degi.

01Netspjall

Spjallbox

Netspjall fyrir vefsíður sem tengir fyrirtæki við gesti sína í rauntíma. Starfsfólk svarar hvar sem það er — í vafranum eða í öppum fyrir iPhone, Android, Windows og macOS.

Í boði á

  • Vefur
  • iOS
  • Android
  • Windows
  • macOS
Í rekstri á spjallbox.is
spjallbox.is
Spjallbox — Netspjall
02Tímaskráning

Tímabox

Tímaskráningarkerfi fyrir íslensk fyrirtæki: GPS-stimplun, vaktaplan, fjarveruskráning og Payday-tenging. Öpp fyrir iPhone og Android — og gervigreind sem les kvittanir og skrifar vikusamantektir.

Í boði á

  • Vefur
  • iOS
  • Android
Í rekstri á timabox.is
timabox.is
Tímabox — Tímaskráning
03Netverslun

Cartico

Netverslunarkerfi hannað á Íslandi fyrir alþjóðlegan markað: verslun í loftið á nokkrum mínútum, allar helstu greiðslugáttir og engin færslugjöld.

Í boði á

  • Vefur
Í rekstri á cartico.com
cartico.com
Cartico — Netverslun
04Vefgreining

Stats

Vefgreiningarkerfi á íslensku sem safnar tölfræði án vafrakaka og uppfyllir persónuverndarlög. AI-innsýn bendir sjálfkrafa á mikilvægar breytingar.

Í boði á

  • Vefur
Í rekstri á stats.is
stats.is
Stats — Vefgreining
05Uppljóstrunargátt

Netbox

Örugg og nafnlaus uppljóstrunargátt sem hjálpar fyrirtækjum með 50 starfsmenn eða fleiri að uppfylla lög nr. 40/2020.

Í boði á

  • Vefur
Í rekstri á netbox.is
netbox.is
Netbox — Uppljóstrunargátt
06Bílastæðakerfi

BasePark

Rekstrarkerfi fyrir bílastæðafyrirtæki: bókanir, verðskrár, hlið og reikningagerð í einu hvítmerktu kerfi fyrir hvern rekstraraðila. Carpark.is er meðal fyrirtækja sem keyra á BasePark.

Í boði á

  • Vefur
Í rekstri á basepark.io
basepark.io
BasePark — Bílastæðakerfi
07Bílaleigukerfi

Omniride

Rekstrarkerfi fyrir bílaleigur: eigin bókunarvefur, greiðslur, skoðunarskýrslur og verðlagning í einu kerfi — frá fyrstu leit að reikningi.

Í boði á

  • Vefur
Í rekstri á omniride.io
omniride.io
Omniride — Bílaleigukerfi
08Bókunarkerfi hótela

Omnistay

Bókunarkerfi fyrir hótel og gistihús sem sleppir þóknun bókunarsíðna: eigin bókunarvél, greiðslur og sjálfvirk samskipti við gesti.

Í boði á

  • Vefur
Í rekstri á omnistay.io
omnistay.io
Omnistay — Bókunarkerfi hótela

02 — Vörumerki

Sérhæfð vörumerki í rekstri Novamedia

Sum verkefni kalla á sérhæfða nálgun og eigið vörumerki. Öll eru rekin af Novamedia ehf.

Model AI

AI-vefsíðugerð

Vefsíðugerð með gervigreind: þú lýsir fyrirtækinu þínu og Model smíðar fullbúna íslenska vefsíðu á nokkrum mínútum — með texta, myndum og bókunarformi.

Skoða vefmodel.is
Vefsíða

Vefsíðugerð

Hagkvæm vefsíðugerð fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki: vefsíður, netverslanir og markaðssetning á föstu, gagnsæju verði.

Skoða vefvefsida.is
Stakk

Vefhýsing

Managed WordPress-hýsing á Íslandi með sjálfvirkri afritun, hraðvirkum NVMe-netþjónum og persónulegri þjónustu.

Skoða vefstakk.is

03 — Viðskiptavinir

Meðal viðskiptavina okkar

Fyrirtæki, skólar og stofnanir sem hafa treyst okkur fyrir vefjum, kerfum og rekstri.

  • Landsbókasafn Íslands
  • Rauði krossinn
  • Brimborg
  • Hagvangur
  • Hjallastefnan
  • Tryggingavernd
  • Gunnars
  • Nathan & Olsen
  • Ásbjörn Ólafsson
  • Vélaland
  • Max1
  • Tjarnarskóli
  • CarPark
  • Gorilla
  • Dufland
  • Bílorka

Viltu sjá dæmi sem líkist þínu verkefni?

Við sýnum þér gjarnan viðeigandi verkefni og hvernig við nálguðumst þau — hafðu samband og segðu okkur hvað þú ert að skoða.